Auglýsing

rass pass

þú ert að skoða síðuna hennar Hafdísar..
endilega kvittið fyrir komu ykkar elskurnar :p

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Gleðilegt Sumar :)

16. maí 2008 klukkan 12:00
Góðan daginn kæru landar....
Þessar bloggfærslur hjá mér eru svona eiginlega orðnar að mánaðarfærslum þar sem líður eiginlega alltaf mánuður á milli bloggfærsla hjá mér...

En já, prófin eru loksins búin og maður getur farið að hugsa um eitthvað allt annað Svalur
oh, þæginlegt að þurfa aldrei að mæta í skólann aftur á hverjum degi. Hér eftir mun ég vænlanlega bara örfáum sinnum þurfa að fara í skólann, og í fyrsta að fara að sækja einkunnir 20 maí, sækja um fjarnám fyrir þessa 2 áfanga sem ég á eftir og að mæta í prófin úr þeim... næææs.... Er komin með upp í kok á að vera í skóla, vil bara drífa mig að vinna og fá peninga, þegar ég er í skóla, þá á ég aldrei peninga.

Svo byrja í  nýju vinnunni á mánudag. Hlakka til að fara að vinna við eitthvað annað en að vinna á Hjúkrunarheimili, þó að það sé alveg ágætt, bara gott að breyta til Glottandi

Nóg að gera á eftir, láta umfelga og láta sumardekkin undir bílinn svona fyrst það er komið sumar (já ég veit, ég er sein), láta smyrja bílinn, fara í ræktina og fara svo í Borgarnesið :P

En hérna, ég hef ósköpin ekki neitt að segja í augnablikinu, ég kveð að sinni

adi.


það er kominn 20 apríl 2008

20. apríl 2008 klukkan 10:55
blogg blogg blogg, þetta er kannski orðið þreytt þar sem maður er eiginlega hættur að blogga, 18 FEBRÚAR var síðasta skiptið sem ég bloggaði
En já það er alveg margt búið að ske (kannski ekkert eitthvað svakalega merkilegt en)

Himmi er búinn að fá sér krossara, þessi elska er víst búinn að langa að fá sér svoleiðis mjög lengi þar sem meirihlutinn af vinahópnum á slíkt. Inná myspacinu er mynd af mér í krossarabúningnum hans Himma




jamms.
Svo er ég komin með nýja vinnu fyrir sumarið. Ég verð víst að vinna í Vínbúðinni á dalveginum. varð svona aðeis að breyta til. ég og Lilja verðum báðar að vinna þar þannig að það verður stuð.

Svo á mín bráðum afmæli. 21 árs kjellan, held ábyggilega upp á það í sumar, hef náttúrlega engan tíma á afmælinu mínu þar sem prófin eru akkurat á þeim tíma, algjörlega óþolandi að eiga afmæli á prófatímanum. Ég fer líka í skemmtilegasta próg EVER á afmælisdaginn minn, Bókfærsla... örugglega eitt leiðinlegasta fag ever.

á föstudaginn fórum við Kristín Anna út að borða með nokkrum stelpum í vinnunni, Fórum á Ruby Thuesday, namminamm. Þetta var reyndar bara í annað skiptið sem ég hef farið þangað. Svo eftir það fórum við upp í Rjúpufellið og fórum að drekka, svo fórum við Linda og Kristín á djammið. Það var bara gaman sko. Langt síðan síðast. Hef ekki farið að djamma heillengi, sem gerir það á skemmtilegra þegar maður fer loksins
Svalur
Það var samt ekkert allt of gaman daginn eftir, þar sem þynnkan var ekki farin þegar ég fór að sofa í gærkveldi... maður á ekki að drekka vodka, halda sér við bjórinn, veit það allavega næst Öskrandi

Svo næsta laugardag förum við famelían í fimmtugsafmæli hjá Jóni bróður mömmu á Hellisandi. Það verður víst ábyggilega gaman þar.

EN jæja krakkar... nenni ekki alveg að skrifa meira... ætla að fara að reyna að læra þar sem það eru 4 próf hjá mér á morgun Óákveðinn

adi

 

 


jessörríbobb :)

18. febrúar 2008 klukkan 13:55

hæhó...

ég skrifa loks þessa langþráðu færslu sökum mikils þrýstings hjá fólki Hlæjandi Maður var víst búinn að lofa einhverju og stendur svo ekki við það. OKey, Ég skal reyna að vera duglegri við færslugerð ...

Eg og Himmi vöknuðum við það í morgun að Mía  var að stökkva á fæturnar á okkur.. treystið mér það er ekki gaman að vakna alltíeinu þegar eitthvað klórudýr klórar í fæturnar á ykkur, maður hrekkur alveg upp....

Nú er bara skólinn sem tekur mest á mann núna, þetta er víst síðasta önnin mín í dagskóla og er námið því svolítið strembið og mikið þannig að ég geri lítið annað á kvöldin en að reyna að læra eitthvað..

Var að koma úr frönskuprófi sem ég hélt að yrði svo svakalega erfitt, en svo held ég að ég hafi rúllað þessu upp :) geðveikt merkilegt eitthvað Svalur

það er ekki mikið búið að ske hjá mér um þessar mundir, fór á djammið á föstudagskveld, varð ekki alveg jafn gaman og það hefði getað orðið...
á laugardag fórum við Lilja á háskóladaginn í Háskóla Íslands, gengum út með fullan poka af pennum og bæklingum..
Eftir það hitti ég Sylvíuna í kringlunni og fórum svo í smáralindina... alltaf gaman að hitta skvísuna, (sem btw hefur EKKI komið í heimsókn til mín til Njarðvíkur....hneyksl)

Svo á næstunni er það bara  vinna í kveld, Imbrudagar í skólanum á miðvikudag og fimmtudag..
Er búin að velja mér eitthvað photoshop dæmi og einhverja kynningu á miðvikudag, og svo skauta á fimmtudag.. frí eftir hágdegi þá og frí á föstudegi...
ágætt að fá smá breik, er komin með endalust mikinn námsleiða Óákveðinn

Ég ætla að láta þetta gott heita í bili því félagsfræðin bíður mín (sem ég gleymdi að læra fyrir heima)

adi...

Árið 2007

10. janúar 2008 klukkan 15:01
Jæja þá verður maður að gera smá ársyfirlit frá árinu 2007, bara svona eins og allir Svalur

Janúar:
Skólinn byrjar, Inga og Linda afmæli 24 janúar, gerist ekki mikið fleira

Febrúar:
Við Himmi fluttum tímabundið til Ingu og Lindu vegna viðgerða á íbúðinni okkar í Ásgarðinum. Einkyrningssóttin hans Himma, mátti ekki vinna í meira en viku og ekki fara út úr húsi. F’orum á Þorrablót hjá mömmuætt á kringlukránni. Sixties lék fyrir bandi og skemmtum við okkur öll bara nokkuð vel, margar sveiflur teknar

Mars:
Páskafrí gengur í garð í nærri því hálfan mánuð, mörg djömm þennan mánuðinn, ég lenti í árekstri og bílinn í viðgerð upp á 300-400 þús. Bíllinn er í kaskó þannig að þetta var í lagi.Við Linda keyptum miðana okkar til Bandaríkjanna.

Apríl:
Kristín Birta varð 9 ára 3 apríl, Inga segir frá óléttu sinni. Pravda brennur, Himmi lendir í bílveltu rétt hjá Borgarnesi og þurfti að sauma 10 spor í hausinn. Ekki mikið fleir þennan mánuðinn.

Maí:
Ég varð tvítug 6 maí, prófin klárast, ég og Linda fórum til Baltimore 16 maí, heví stuð, keyrðum virkilega mikið og ferðin var virkilega dýr :s En sé samt ekki eftir að hafa farið.

Júní:
Komum heim frá USA 6 júní, miklar óeirðir við lendinguna. Við Sylvía fórum á leiðinlegt ball upp í hesthúsahverfi.

Júlí:

4 ár liðin frá því að pabbi dó. EHimmi varð 23 ára Ullandi Ekkert í þessum mánuði nema vinna vinna og vinna mikið.

Ágúst:

Við Himmi keyptum íbúð í Njarðvík, skólinn byrjar...


September:
Sævar átti afmæli, fullt af djammi og sonna

Október:
Fékk loksins internetið í lag, guði sé lof, vinna, skóli, ekki fleira sérstakt.

Nóvember:
Mamma varð 51 árs,  Snotra mín lenti fyrir bíl, mikil sorg þar á ferð, Við Himmi fengum okkur nýja kisu seinni part nóvember, hún heitir Mía, Inga systir og Sæmundur eignuðust lítinn prins 26 nóv, algjört krútt. Jólahlaðborð með vinnunni á Broadway (George Michael show).

Desember:
Árshátíð hjá vinnunni hjá pabba Himma, gisting á Grand hotel, fórum að borða á Domo og sáum leiðinlegt leikrit í þjóðleikhúsinu sem heitir Hamskipti.
svo bara jólin, þau voru mjög fín að vanda...

þá er upptalningunni lokið, gæti alveg verið að maður hafi gleymt einhverju.. Skrifaði náttúrlega svo fáar færslur á árinu og stend fast á því að ég ætla að reyna að bæta það, skrifa allavega 3 færslur á mánuði ... it's a deal Glottandi

Akkurat :)

29. nóvember 2007 klukkan 12:55

jæja, erum við að tala um að það sé langt síðan ég skrifaði síðast??
ég er sko ekki að standa mig í stykkinu :S En já það er náttúrlega ýmislegt búið að ske síðan í október.

ok. Hún Snotra mín lést að völdum hraðakstri í götunni minni... við ætlum að heimta hraðahindrun fyrir framan húsið okkar, fólk er að keyra allt of hratt framhjá því, þetta er ekki aðalgata.

Mamma var 51 árs 2 nóvember, Hafdís var svo sæt að senda henni blóm í borgarnesið.

Sylvían mín varð tvítug 19 Nóvember

Við himmi fengum okkur nýja kisu vegna mikils söknuðar og einmanaleika seint í Nóvember. Hún er afskaplega falleg tveggja mánaða snót, þrílit, getið séð mynd af henni á myspace síðunni minni.

Ég náði náttúrufræði 123 með 4,9 í lokaeinkun út úr prófunum. Heimsmet slegið, segi svona, bjóst sko ekki við að fá hæst út úr eðlisfræðiprófinu (5,8) þetta var nefninlega próflaus áfangi.

Inga systir eignaðist lítinn prins um eittleytið í fyrradag. Pilturinn var afspyrnumyndarlegur (eins og foreldrarnir) 16 merkur og 52 cm. álger krúsídúlla

Fór í litun sama dag (ljóska) var ekki ánægð með litinn...:S

Föstudag fer ég aftur í litun og láta laga litinn...

á föstudag verður jólahlaðborð með vinnunni... George Michael show á Broadway.. hlakkka til

Á laugardag verður árshátíð hjá vinnunni hjá pabba Himma!   Keila, leikhús, út að borða á lækjarbrekku og gisting á Grand hótel.  Vííííj...

Þá er það ekki meira að sinni, verð að drífa mig í tíma :) adi

símagæjareiðispistill...

09. október 2007 klukkan 10:42
jæja, þá held ég að sé komið að því að hér verði rituð eitt stykki færsla..
Við erum búin að hafa það bara ágætt í Njaðvíkinni, ekki enn komin með netið sem ég átti að fá fyrir löngu.. nú er það komið  í ljós að ráderinn er bilaður og þarf ég að fá gæja frá símanum til að koma og kippa þessu í liðin. og hann ætlaði að koma í gær en mætti ekki, þannig að ég hringi aftur í dag! leiðinlegt að þetta skuli vera svona mikið vesen.

EN já, ég og Linda fórum að djamma á föstudag, það var alveg heví gaman, nema þegar við vorum inn á  dubliners var alltaf einhver vangefinn útlendingur að dansa alveg ofaní okkur, koma við okkur, ég var alltaf að ýta honum í burtu, þá kom hann bara aftur með einhvern glott svip og reyndi enn meira að koma við okkur.

Svo er bara stefnan næstu helgi að fara á flúðir, sem ég hef ekki gert lengi, gista þar föstudagsnóttina, og kíkja svo í bústað til hennar Sylvíu minnar á laugardagskveldið, það verður væntanlega smá djamm þá..Svalur

Annars er svakalega mikið að gera í skólanum um þessar mundir, greinilega svolítið mikið mál að vera í 9 fögum í skólanum, soldið mikil vinna, hef ekki tíma fyrir neitt annað en að vinna, læra og vera skóla, svo er alltaf svo freistandi að hætta að læra til að horfa á bíómynd eða eitthvað með Himma.. kjáninn ég Glottandi
Svo var próftaflan að koma, ´hun er bara nokkuð ágæt, fer í 5 lokapróf, ekkert sem er sama daginn, næs.

ætlaði bara rétt að kasta smá fréttum af mér inn.. rita fljótlega aftur, get samt engu lofað þar sem þessir símagæjar eru að gera mig brjálaða.. kreisí in da breinhás Öskrandi

adi

Netleysi

04. september 2007 klukkan 11:09
jæja folks.. þá hefur maður bara ekkert komist í tölvu, eða á netið því ég er ekki enn komin með það heima í Njarðvík, en það er verið að fara að redda þessu öllu saman í dag. Ullandi næ aldrei að skila verkefnum í skólanum fyrr en of seint því meirihluti heimalærdómsins er í gegnum netið.. sökkandi.

En annars. Okkur líkar bara mjög vel hérna í Njarðvík, svolítið þæginlegri aðstaða þarna en á gamla staðnum. Nú er bara málið á fá sér svefnsófa, henda honum í stofuna, svo fólk geti farið að gista hjá okkur ! Maður verður nú að fara að fá einhverja heimsókn.. heyriði það... Glottandi 

F'or í vinnupartý á laugardaginn með Kristínu Önnu, það var bara mega gaman, allir voða hressir, var á einhevrju svaka trúnó við eina af eldri konunum, held að ég hafi verið eitthvað að móðga hana, en það kemur allt í ljós þegar maður hittir pípólið. Svo var bara allir í karókí, yfirhjúkkan var skæðust í söngnum, það var fyndið, orðin soldið vel í því konan, alltaf syngjandi...

Mamma kom líka um helgina með litla dýrið hana Kristínu Birtu, þær gáfu okkur Himma Ryksugu og amma vildi vera með og gaf okkur kaffikönnu, svo þær geti fengið sér kaffi þegar þær koma í heimsókn, allavega drekkum við  Himmi það ekkiÓákveðinn 

En jæja, ætlaði bara rétt að henda inn smá færslu svona fyrst maður kemst á netið hér í skólanum.

adi

Flutningsdagurinn mikli

20. ágúst 2007 klukkan 10:16
jæja fólk, alltaf nýtt að frétta hjá mér,

Í dag flytjum við Himmi í nýju íbúðina í Njarðvík :)

Fyrst fer ég núna í hágdeginu og sæki lyklana af íbúðinni, svo fer ég í nesið og sæki snotruna mína, fer með hana upp í íbúð, Svo kemur Himmi á vörubíl með allt draslið okkar til Njarðvíkur og við flytjum dótið inn.. mér hlakkar svo til að komast í eitthvað betra, erum búin að lifa inná Inglu, Lindu og Sæma í einhvern tíma.

Svo er skólasetningin í fyrramálið, þarf víst að breyta stundatöflunni minni soldið mikið, fékk bara 18 einingar í töflu í staðin fyrir 25 eða eitthvað, maður verður að vera með margar einingar ef maður ætlar að ná þessu á réttum tíma. Svo byrjar skólinn á þriðjudag, er svona komin með upp í kok að vinna á þessum stað í fullri vinnu, bja, þannig að ég er soldið feginn að skólinn sé að byrja

svo eftir 2 mánuði fer maður í sömu stöðu aftur, oh, ég er komin með leið á skólanum, langar að fara að vinna Hlæjandi

jæja, er að spá í að fara að kaupa eitthvað, stílabækur og penna og svona drasl áður en ég sæki lyklana...
 
p.s Svo væri náttúrlega gaman að fá fólk í heimsókn þegar maður er fluttur, samt kannski ekki á morgun eða neitt þannig, höfum ekki alveg tíma til að koma öllu dótinu fyrir strax sökum vinnu hjá Himma og skóla hjá mérÓákveðinn

En endilega látið mig vita ef ykkur langar í heimsókn..

Habba letidýr :)

29. júlí 2007 klukkan 22:48
jessöríbobb.. það er nú ekki oft sem maður nennir að koma nýrri færslu á framfæri. Ég er svona eiginlega hætt að nenna, sérstaklega þar sem talvan mín er yfirfull af einhverjum vírusum og leiðinlegheitum.
En jæja, ekkert mikið í fréttum hér á bæ, fór á djammið á laugardagskveldið með Lindu, það var bara fjör fór svo á kvöldvakt í dag, geggjað þreytt og þunn, ömulegt, er svo að fara á næturvakt núna (er einmitt í tölvunni þar) því stelpan sem átti að vera lenti fyrir bíl, og brákaði sig á nokkrum stöðum. 

Svo um versló verður bara farið í fjölskylduferðalag eins og alltaf, Himmi kemur líka þrátt fyrir mikið umtal um geggjað djamm á Flúðum, svo bara nennti hann ekki þessu fyllerísveseni Svalur

Við Himmi fórum í dýrabúðina í gær því Snotra var búin að týna ólinni sinni, keyptum geggjað sæta ól og svona bleikt hjarta og létum grafa nafnið hennar í þa framaná og símanúmerið mitt aftaná, rosa krúttaralegt Glottandi

Ég ætlaði bara rétt að kasta inn smá fréttum af mér og mínum, best að fara að vinna eitthvað...
p.s. reyni að bæta mig í skriftunum Saklaus

Minning!

15. júlí 2007 klukkan 16:22
                                      

                                       Ólafur Gunnarsson
                                              ( 21.03.59-15.07.03)


                                             pabbi

4 ár í dag eru síðan pabbi minn, hann Ólafur fór frá okkur. Hann var alltaf hrókur alls fagnaðar þegar leikrit, ferðalög eða skemmtanir áttu sér stað. Fjölskylduvænn var hann og varla hægt að finna betri mann en hann var.
Ég setti þessa minningu hér inn svo fólk sem þekkti hann geti minnst hans áfram.
hvíl þú í friði...


                                                     images